Wednesday, January 28, 2009

(Ekki pissu)Blautir i Iguazu!


Sidasti dagurinn i Buenos Aires for adallega i hangs. Vid Arnor kiktum klukkan half 6 um morguninn aftur a thennan gudsvolada smaelingjaspitala. Thad for tho ekki betur en svo ad thegar eg taldi mig hafa att pantadan tima hja laekni var raunin su ad eg atti ad fara aftast i kilometerslanga rod kokfikla og kynskiptinga til ad lata segja mer hvada haed eg aetti ad fara a til ad bida i annarri rod. Til ad gera stutta sogu enn styttri tha beiludum vid hid snarasta, hvad vita thessir thridja heims laeknar svosem? Til ad valda folki engum ahyggjum tha sendum vid thess i stad myndir og lysingu a astandi minu a heimilislaekninn Halldor(pabba Snaesi, kaerustu Arnors) og er eg nu ad hefja syklalyfjakur eftir tha radfaerslu.
Restin af deginum var frekar omerkileg og samanstod af hangsi og ati. Klukkan 6 stigum vid svo upp i rutu til Iguazu og hofum thessa u.th.b. 15 tima rutuferd. Aldrei fyrr hef eg skemmt mer eins vel a ferdalagi. I fyrsta lagi voru saetin drulluthaegileg og haegt ad halla theim aftur i (naestum)rum. Svo fengum vid rosalega vel utilatinn kvoldmat og morgunmat og eins mikid af koki og vini og vid vildum. Halft glas af vini verandi meira en vid vildum. Thad besta var tho sjonvarpsdagskrain i bilnum en hun samanstod af Crash(semi mynd), musikvidjo med einhverjum cholo medan vid atum, Dark Knight eftir mat og sidan Revolutionary Road(dvd screener) eftir morgunmatinn. Thegar vid komum a afangastad vorum vid tho allir fegnir ad geta teigt alveg ur loppunum enda eru thessi saeti(og rumin a hostelunum) ekki gerd fyrir rumlega 6 feta nordurlandabua.
Hostelid her i Iguazu er mjog hresst, fullt af lidi, stor sundlaug og alles klar af ollu tagi. Eftir ad vid maettum akvadum vid strakarnir ad rolta inn i baeinn(svona halftima rolt) og endudum a hofninni. Thar tok a moti okkur madur sem hof strax ad pranga upp a okkur batsferd um arnar sem skilja ad Argentinu, Brasiliu og Paragvae. Vid tokum agaetlega i thad og borgudum sjalfsagt allt of mikid enda ordnir soltnir i eitthvad almennilegt aktiviti. Thott thetta hafi ekki verid adrenalinsprauta tha var landslagid rosalega flott og vid nadum nokkrum gridarfallegum myndum.(sem allir fa ad njota thegar vid finnum tolvu med usb portum)
Vid Gunni og Ari spiludum fyrir hond Islands i berfaettum fotboltaleik thar sem vid komu hvorki fleiri ne faerri en fjogur thjoderni. Vid vorum a endanum a pari vid astralina en attum langt i land med ad jafnast a vid argentinubuana og bretana. Arnor las bok a medan. Vid letum hann ekki vita, sorry Nori. Besti leikmadur vallarins var klarlega Hermann, argentinski homminn sem spiladi a speedo skylunni sinni, sem skyldi fatt eftir i hondum imyndunaraflsins.
I dag hofum vid svo daginn snemma og heldum ad hinum margumtoludu Iguazu fossum. Heldum fyrst i sma gonguferd um svaedid en um leid og taekifaeri gafst duttum vid i batsferd um fossasvaedid sem reyndist ein besta skemmtun i okkar allra minnum. Forum sumse um bord i spittbat sem brunadi med okkur undir hvern fossinn a faetur odrum. Thad er fullkomlega olysanlegt hversu gaman thetta er og vid vorum allir fallnir i hysterisk hlaturskost thegar thessu var hvergi naerri lokid. Eftir thetta klarudum vid ad rolta um svaedid og sofnudum sidan naestum allir i lestinni a leidinni utaf svaedinu. Tokum eftir thad omedvitada akvordun um ad beila a ad skoda fossana Brasiliumegin enda holdum vid hedan brott a morgun. Naesta stopp a ferd okkar verdur borgin Resistencia og eftir thad thykir okkur liklegt ad Salta verdi fyrir valinu sem naesti afangastadur. Annars langar okkur ad skoda margt her i nordurhluta Argentinu og er mogulegt ad vid thurfum ad velja og hafna. Thar eru Rosario(uppalningarstadur Che), Mendoza og Cordoba efst a bladi. Thar til naest, Baeo!

Sunday, January 25, 2009

Sjukratryggingar otharfar

Vid hofum gaerdaginn a thvi ad liggja i kor eftir agaetis skemmteri kvoldid adur. For reyndar thannig ad stelpurnar sem hofdu komid ser fyrir a hostel dorminu med okkur kunnu ekki ad meta hin valinkunna islenska sjarma og letu sig hverfa um midja nott med kvarti og kveini um laeti. Logdu lika fram tha ovidurkvaemilegu kvortun ad vid hefdum gengid um a typpunum og pissad i rumin theirra. Thvilik svivirda! Eftir ad hafa komid hostelgellunni i skilning um thad tjon sem hinar astrolsku Courtney og WhatsHerFace vaeru augljoslega i drulludum vid okkur ut af hosteli og roltum ad grafreit Evu Peron, sem stendur einmitt i midri grafhysathyrpingu. Thessi heimsokn var mjog skemmtileg, thratt fyrir ad gridarlegur hiti og smavaegileg thynnka hafi gert thad ad verkum ad vokvainntakid var yfir ollum velsaemismorkum.
A leidinni heim gekk upp ad okkur madur, Federico ad nafni, og baud okkur ad kaupa af ser kannabisefni. Hann vard thar med madur nr. 3 til ad bjoda okkur slikt i ferdinni hingad til. Djofuls hopthrystingur. Kvoldid var svo ad mestu rolegt, forum a flott veitingahus til ad fagna fyrsta laugardeginum i Argentinu og borgudum ruman 1000 kall fyrir frabaera kvoldmaltid. Eg og Arnor forum svo snemma i hattinn medan Gunni og Ari hofdu ofan af fyrir breskum yngismeyjum.
I morgun for eg svo ad hafa dalitlar ahyggjur af ogedslegum skordyrabitum sem eg vard fyrst var i gaermorgun og hofdu dreift ur ser svo thaer myndudu linur upp eftir aedunum a mer. Vid, verandi abyrgir vitleysingar, forum i apotek til ad fa fagleg rad og thar benti madurinn okkur a ad lata tekka a thessu uppa spitala bara til ad vera vissir um ad thetta vaeri bara sma ofnaemisvidbrogd. Vid forum thangad og tokst med herkjum ad gera okkur skiljanlega vid nokkrar hjukkur a ogedslegasta spitalagangi sem thessir ferdalangar hafa sed. Ad lokum var eg kalladur upp og sagt ad utskyra malavoxtu fyrir odrum hjukkuhopi en svo heppilega vildi til ad madurinn sem la sjukraleguna inna vidtalsherberginu gat thytt a milli. Mikill snilld! Eftir ad hafa fengid serfraediradgjof thadan erum vid vissari en nokkru sinni ad thetta se bara eitthvad ofnaemisrugl thvi thetta hefur hjadnad til muna nu i eftirmiddaginn. Eg kiki reyndar til hudlaeknis i fyrramalid adur en vid leggjum i hann til Iguazu til ad vera alveg 150 prosent en thad skal enginn hafa ahyggjur. Hr. sjukdomatrygging bjargar mer ef allt annad bregst ;).
Annars er planid bara ad fara med naeturrutu til Puerto Iguazu a morgun og eyda thar thremur dogum i mikla snilld! Bae a medan!

Friday, January 23, 2009

Djofu** snilld!

Thad er ekki ofsogum sagt ad Buenos Aires er ein flottasta borg sem nokkur okkar hefur skodad. I dag hofum vid daginn snemma og aetludum ad detta i walking tour um borgina. Vid misstum reyndar af tourinu en akvadum ad detta bara i okkar eigin gongutur um midbaeinn. Arkitekturinn herna er alveg serstaklega fyndinn. Her blandast saman 17.-18. aldar byggingarstilar og 1980-90 "nutima" hus a alveg otrulega hressan hatt. Allt er uti i risastorum trjam a hverri umferdareyju og gotuhorni og allt idar af gridarlega hressu mannlifi. Og sidan er gedveikt vedur, einsog myndirnar sem vid hofum tekid syna! Fyrir ahugasama ma finna thaer myndir sem hingad til hefur verid uploadad a flickr.com/photos/ingolfurhalldorsson og flickr.com/photos/arnorgunnarsson. Thad er svosem ekkert rosalega merkilegt buid ad gerast. Vid byrjudum strax i gaer ad mingla vid adra hostelgesti. Spjolludum vid bretann Rob, sem sakadi okkur um ad hafa raent ollum peningunum hans. Thad var samt bara lett efnahagsgrin. Spjolludum lika vid kanadamann, sem var nykominn ur tveggja vikna ferd til kolumbiu hvar hann hafdi tapad raenu og radi i kokainfjalli. Hresst lid! I kvold er planid ad slaka a hostelthakinu med bjor og snakk og skoda svo grafreit Evu Peron a morgun. Don't cry for me argentina og allt thad. Vaeri kannski rettara ad grata slaema heilsu islenskra stjornmalamanna. AEtli Moctezuma hafi ekki tekid ser fri fra thvi ad gefa ferdamonnum drullu til ad skella illkynja aexlum i radherrateymi islendinga. Thar til naest!

Thursday, January 22, 2009

Maettir til BA!

Jaeja, nu erum vid komnir. Eftir 2 heila solarhringa af ferdalogum sitjum vid nu og munchum morgunmat a hostelinu okkar i BA. Allt hefur gengid afallalaust fyrir sig hingad til, allir bakpokar komist a leidarenda og allir menn lika. London var ad venju svivirdilega dyr og bretarnir halda uppteknum haetti og eru hradlygnir sem aldrei fyrr. 9 tima stoppid okkar a flugvellinum i Madrid reyndist sidan hin besta skemmtun, vid satum inni i reykherbergi i thaegilegum stolum og hofdum thad naes. 12 tima flugid til Argentinu flaug svo hja(pun intended) enda svafum vid allir vel tha nottina. Thegar vid voknudum tok svo vid okkur blodraud solaruppras. Nu erum vid ad plana hvert skal halda fyrst i thessari eldhressu borg. Myndir koma bradlega thegar vid nennum ad standa i ad uploada theim. Bae i bili!

Monday, January 19, 2009

Bara prufa!

Langar bara að tékka hvort allt gangi ekki eðlilega fyrir sig, hvort það sé nokkuð vesen að linka í flickr myndir og svoleiðis. Annars förum við í loftið 7:30 í fyrramálið og eigum að lenda á Stansted rétt fyrir 11. Mér þykir harla ólíklegt að við komumst hvergi í netsamband á flugvöllunum á leiðinni(og ekki verður það tímaleysi sem aftrar okkur!) en ég bið samt fólk um að halda ró sinni allavega þangað til við erum komnir til Argentínu. Það ætti að vera um það bil 48 tímum eftir brottför frá Keflavík. Annars lofum við að senda "Við erum á lífi!" póst eða blogg í hverri viku og það verður ábyggilega oftar að meðaltali áður en yfir líkur. Bæó Ísland!